Terms of service

Skilmálar

 

1. Gildissvið

Þessir skilmálar gilda um kaup á vörum í vefverslun VINA Trading B.V.
VINA Trading B.V. er í eigu Vína ehf. Með kaupum á vefnum samþykkir kaupandi þessa skilmála.

2. Aldurstakmark

Til að versla á vina.is verður kaupandi að hafa náð 20 ára aldri.
Með skráningu og pöntun staðfestir kaupandi að hann uppfylli aldursskilyrði og beri fulla ábyrgð á því að aðgangur og vara komist ekki í hendur ólögráða eða einstaklinga yngri en 20 ára.
VINA Trading B.V. áskilur sér rétt til að hafna eða ógilda pöntun ef grunur vaknar um brot á aldurstakmarki.

3. Afhending

Allar vörur sem VINA Trading B.V. býður til sölu í vefverslun sinni eru á lager á Íslandi og eru afgreiddar úr vöruhúsi innan dags eða næsta virka dags eða eftir samkomulagi. Sendingarkostnaður reiknast sérstaklega og bætist við heildarverð áður en greiðsla fer fram. Ef vara reynist ekki til við afgreiðslu, til dæmis vegna rangrar birgðaskrár, munum við hafa samband við viðskiptavin og bjóða sambærilega vöru í staðinn eða endurgreiðslu.
VINA Trading B.V. selur hvorki til hollenskra ríkisborgara né einstaklinga með skráð lögheimili í Hollandi.

5. Verð og verðbreytingar

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með inniföldum virðisaukaskatti (VSK), ýmist 11% eða 24% eftir eðli vöru. Verð geta breyst án fyrirvara, en pöntun sem hefur verið staðfest heldur því verði sem gildir við staðfestingu.

6. Greiðslumátar

Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt og er hægt að greiða með helstu debet- og kreditkortum.

7. Skilareglur og gallar

Vörum er að jafnaði hægt að skila innan 14 daga frá kaupum, með þeirri undantekningu að skila- og endurgreiðsluréttur nær ekki til mat- og drykkjarvöru, þar með talið bjórs og víns.
Í undantekningartilvikum, svo sem þegar um er að ræða stærri pantanir vegna veislna eða sambærilegra viðburða, getur komið til sérstakra samkomulaga um skil. 

8. Persónuvernd

VINA Trading B.V. fer með allar persónuupplýsingar sem trúnaðarmál í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf (GDPR). Upplýsingar um greiðslukort eru ekki geymdar, þar sem greiðslur fara í gegnum viðurkennda greiðslugátt Teya.

9. Ábyrgð

Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á tjóni sem leiðir af röngum notkunaraðferðum eða ef kaupandi skráir rangar upplýsingar. Fyrirtækið áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir ef upplýsingar eru rangar eða grunur leikur á misnotkun.

10. Varnarþing

Allur ágreiningur sem kann að rísa vegna þessa skilmála skal rekinn fyrir Héraðsdómi Suðurlands.

11. Upplýsingar

VINA Trading B.V.
Verdunplein 17, Unit C3060, 5627 SZ Eindhoven
Netfang: vina@vina.is
Kennitala: xxxxxx-xxxx